|
14.05.2010 14:47:56 / skkari
Sælir bræður
Það er nottlega bara glatað að hingað sé ekki kominn inn póstur mikið fyrr og það sé ekki búið að gera og græja fyrir frysta heimaleik en raun ber vitni.
En hér er allaveganna það sem er í gangi!
Það er leikur á móti Víkingum kl. 20:00 á Fjölnisvelli á eftir! Við Káramenn ætlum að sjálfsögðu að fjölmenna! EKKI LÁTA ÞIG VANTA!! Það er hittingur á Gullöldinni fyrir leik kl. 18.30!!
Allir að mæta
Kv. Kiddi mauraæta!
»
12.01.2010 00:07:53 / skkari
Sælir bræður Formaður yðar heilsar á nýju ári.
Í kvöld átti sér stað sá viðburður að þrír stjórnarmenn Kára ákváðu að söðla um sig og ganga inní stjórn knattspyrnudeildar Fjölnis. En það er formaður yðar Ingi Þór Finnsson, framkvæmdastjóri Bjarni Þór Logason og Stefán Örn Kárason. Aðdragandi þessa máls var í raun og veru mjög stuttur og hófst á miðvikudaginn seinasta og í kvöld var þetta formlega klárað. Við sitjum því í stjórn knattspyrnudeildar með Kára Arnórssyni formanni, Einar Hermannssyni og svo Guðna, sem ég kann því miður ekki betri skil á. Ástæðan fyrir þessu er einföld, það vantaði menn í stjórn og þetta var alltaf stefnan hjá okkur þrem. Einnig er hægt að líta á þetta svona "Þegar Fjölnir kallar, þá svarar Kári"
Þetta þýðir auðvitað breytta tíma fyrir Kára, því það er nokkuð ljóst að undirritaður mun ekki gegna embætti formanns í Stuðningsmannaklúbbnum áfram og það sama á við um Bjarna og Stebba. Þetta þýðir að það hefur skapast vettvangur fyrir nýja menn til að koma inn og taka við stjórnartaumunum. Þetta þýðir þó ekki að við munum hætta öllum afskiptum við Kára. Við munum aðsjálfösgðu ávallt bjóða fram krafta okkar í þágu Kára og við munum ALLTAF verða SJÓÐHEITIR stuðningsmenn Fjölnis og munum rífa kjaft og láta í okkur heyra á öllum leikjum.
Við viljum einnig benda á hið augljósa tækifæri sem hefur skriðið uppí rekkju okkar með þessum breytingum. Þetta mun þýða það að Kári er kominn með beintengingu inn í stjórn Knattspyrnudeildar Fjölnis, menn sem þekkja það af eigin reynslu hvað það er að vera stuðningsmaður. Þessi tenging mun hjálpa báðum aðilum mikið og mun sérstaklega hjálpa Kára í að festa sig í sessi sem einn al öflugasti stuðningsmannaklúbbur landsins.
Þótt fall hafi verið staðreynd á síðasta tímabili og nýjir leikmenn eru kannski ekki að koma í bílförmum í Voginn þá er enginn sem segir mér það að ekki séu bjartir tímar framundan í Voginum. Fjölnir er mjög ungt félag sem stefnir hátt og mun fara hátt. Ég held það líka að það séu spennandi tímar framundan hjá Kára. Líkt og í góðærinu þá er ekki laust við það að menn hafi gleymt sér svolítið í gleðinni á seinasta ári hjá Kára, þar sem óraunhæfar kröfur voru gerðar til félagsmanna. Utanað komandi pressa á klúbbinn spilaði þar líka stórt hlutverk. Með áðurnefndu falli gefst líka tími til þess að setjast niður, draga andann og hugsa með sér, hvað vilja menn með Kára. Á þetta að vera hópur sem VERÐUR að mæta á alla leiki og vera með tryllt læti, eða á þetta að vera samheldin hópur sem hefur skemmtanagildið í fýrirrúmi, eða einhverskonar samblanda af hvorutveggja. Þetta verður fyrir nýja stjórn að ákveða.
Það er því staðreyndin að okkur vantar svar við þrem laufléttum spurningum. Hverjir eru tilbúnir að hjálpa til við Kára, hverjir vilja leiða klúbbinn á þessum tímamótum og hvernig vilja menn standa að því? Skal blásið til kosninga og þá hvenær?
Endilega segið ykkar skoðun hér að neðan! (vá þetta er búið að vera svona eins og áramótaávarp, alltof langt!)
Kv. brátt Fyrrverandi formaður Ingi Þór Finnsson
»
19.09.2009 17:03:17 / skkari
Seinasti heimaleikur sumarsins Þá
er síðasta tækifæri okkar Káramanna í sumar að láta í okkur heyra á
heimavelli.... Leikurinn hefst kl. 16.00 og hvet ég alla til að mæta
vel tryllta á leikinn! Tímasetning:20. september 2009 16:00 Staðsetning: :Sandgryfjan í Grafarvogi
Ingi Þór Finnsson
»
29.08.2009 14:32:21 / skkari
Mæting á öldina kl 15:00 Leikurinn byrjar kl 16:00
kv KristinnÞór
»
14.08.2009 12:34:00 / skkari
Jæja síþreyttu bræður
FH-ingar á morgun á Fjölnisvelli!
Ég er búinn að spá 3-1 sigri Fjölnismanna!
Ætla menn ekki að mæta?
Leikurinn er kl. 16.00 og það er bara hittingur fyrir á Öldinni!
Ætla ekkert að hafa þetta flónara!
Kv. Formaðurinn
»
04.08.2009 18:15:25 / skkari
Sælir mínir virðulegu bræður!
Þá er komið að því... 2 sex stiga leikir framundan og Kári í sjónvarpinu annað kvöld... stóra vika... fyrir suma...
Fyrri leikurinn á morgun á Fjölnisvelli á móti Þrótti og er sjónvarpsleikur en næsti leikur svo í Eyjum á móti ÍBV. Þangað ætlar Kári að skella sér og við vonum svo innilega að sem flestir komi með! Farmiðinn mun vonandi ekki kosta meira en 5000 kr. og munum við fljúga fram og til baka frá Reykjavíkurflugvelli, á sunnudeginum. Við munum fara samferð Fjölni. En við munum kannski kynna þetta betur á morgun!
Hvað snýr að leiknum á morgun þá er dagskráin eftirfarandi : 17.00 - Mæting á Öldina 17.45 - Stebbi verður trylltur á brókinni, hlaupandi upp og niður götuna, öskrandi "Ég hata lögguna" 18.00 - Vegna ótal fyrirspurna þá ætlum við að sýna "myndbandið" aftur. 18.50 - Reynt verður að æfa eitthvað af nýju lögunum... þannig allir geti verið með! 19.35 - Menn fá 5 mín til að púðra á sér nefið fyrir beina útsendingu! 19.40 - Lagt verður af stað á Fjölnisvöll! 20.00 - 21.30 - ALþjóð verður vitni af því hversu góður og öflugur stuðningsmannaklúbbur Kári og hvað hann getur verið "barnalegur og dónalegur" BIDZ! 21.45 - ÖLDIN!
Kv. Formaðurinn
»
27.07.2009 12:17:47 / skkari
Nú er komið að leik Grindavíkur og Fjölnis.... Við ætlum nátturulega að reyna það sama og í fyrra og vinna....
Mæting á öldina kl: 17:00 Rúta kl:18:20 Flautað til leiks kl:19:15 Skella okkur á Barinn í Grindavík kl: 20:00 Fara fagnadi á öldina eftir 2 - 1 sigur hjá fjölnis mönnum.....
Kv Stinni á skinni....
»
17.07.2009 13:44:15 / skkari
Jæja dömur mínar... þá er komið að því að taka á móti knattspyrnu rúnkurunum í KR Leikurinn er á sunnudaginn og erum við Káramenn að vonast til að ná upp sömu stemmingu og hefur verið á seinustu 2 heimaleikjum. Seinasti leikur var sigurleikur á móti Stjörnunni og nú þýðir ekkert annað en að keyra á sigurbraut og næla sér í fl. stig.
Eins og flestir vita er Andri Steinn Birgisson kominn heim í Grafarvoginn en hann er skv. fréttum á láni frá Asker... það er vonandi að Andri Steinn sé kominn til að vera og hann ætli sér fl. en þetta tímabil hjá Fjölni!
Leikurinn hefst kl. 19.15 og dagskráin er sem hér segir 17.00 - Káramenn fjölmenna á Gullöldina og skella í sig nokkrum köldum. 17.15 - Stebbi með skemmtilega spilagaldra sem allir geta haft gaman af! 17.30 - Æfing á lögum sem menn þekkja ekki nægjanlega vel. 18.55 - Lagt verður af stað útá Fjölnisvöll 19.15 - Flautað til leiks 19.16-21.00 Káramenn svívirða KR-inga þangað til Miðjan fer að væla (eins og í fyrra) 21.00 - Leik Fjölnis og KR endar með 1-0 sigri Fjölnismanna (munið að ég var sannspár í fyrra) 21.15 - Upphefst mikil gleði á Gullöldinni þar sem Fjölnir er loksins komið á skrið!! Koma svo strákar! Ekki láta ykkur vanta þegar við endurtökum leikinn frá því í fyrra!! Hringjið í alla! ALLA!!
»
14.07.2009 17:15:36 / skkari
Jæja strákar hvað er að frétta í dag? Eru ekki allir eitursprækir?
Leikur gegn KR á sunnudaginn næsta og ég trúi varla öðru en að Kári ætli að mæta trylltur á svæðið og gera allt vitlaust eins og hann er búinn að gera á seinustu leikjum.
Dagskráin kemur inn á fimmtudaginn... hef ekkert heyrt um hvort Gullöldin sé búin að bjóða KR-ingum aftur í heimsókn. Það kemur bara í ljós!
Eins og Úlli kom inná hér áðan þá er Andri Steinn að æfa með Fjölni og spilar æfingaleik á móti Stjörnunni í kvöld... þannig það er bara spennandi að sjá hvort að einn af okkar týndu sonum koma aftur heim í Grafarvoginn. Það yrði klárlega tekið vel á móti honum.
Skemmtileg staðreynd fyrir alla Fjölnismenn ... Fjölnir hefur ALDREI tapað fyrir KR á heimavelli í Úrvalsdeild!! How do you like them potatos!
En byrjið strax að gíra ykkur upp fyrir sunnudaginn bræður því þá ætlum við að gera allt vitlaust!
Kv. Fonzinn
»
08.07.2009 12:51:18 / skkari
Jæja hvað segja menn? Eru menn ekki tilbúnir að fjölmenna á morgun og hjálpa strákunum að landa sigri á móti ofmetnu liði Stjörnunnar! Ég er viss um að svarið hjá öllum er JÁ!! Það var þrusu stemming á móti Fram og mér skilst að stemmingin hafi verið góð á móti Breiðablik þannig það er um að gera að halda uppteknum hætti og vera með þrusu stemmingu aftur!! OG stemmingin er alltaf betri eftir því sem fleiri mæta á völlinn! Þannig ALLIR mæta!! Leikurinn er kl. 19.15 og er að sjálfsögðu spilaður á Heilagri Grundu! Því er tilvalið að mæta á Öldina á milli 16-17!! Ég verð þar tímanlega og veit að Stebbi verður það líka!! Þannig það er ljóst að þar verður fjörið!! Ekki láta þig vanta á langþráðan sigurleik þar sem við lyftum okkur uppúr fallsæti! Kv. Fonzinn
»
02.07.2009 15:02:19 / skkari
Sælir bræður
Í kvöld er leikur á móti kópójullunum í Breiðablik. Formaðurinn verður ekki á svæðinu og því er hægt að nálgast miða á Gullöldinni hjá Gunna Fugl eða bara tala við hann.
Síminn hjá hönum er 770-6402
Kv. Formaðurinn
»
24.06.2009 15:00:54 / skkari
Planið er skothelt... okkur wantar bara ÞIG!! til að mæta og taka þátt!!
16.00 - Gullaldarstemming fer í gang 16.01 - Stebbi með spilagaldur 16.15 - Grillmeistarinn Svenni sér um að kveikja í grillinu og byrja að grilla hammara, þér að kostnaðarlausu!! 16.16 - Stebbi sér um að gleypa eld úr grillinu 17.30 - Sýnt verður myndband sem var tekið upp fyrir Fylkisleikinn seinasta... verður mjög flott 17.59 - Stebbi með létt uppistand 18.00 - Tekin verður ein æfing á Káralögunum þar sem margir eru örugglega orðnir ryðgaðir í þeim!! 18.50 - Lagt af stað á Fjölnisvölld 19.14 - Stebbi kýlir Milhouse 19.15 - Leikur Fjölnis og Fram hefst og vonandi mun sturlaður stuðningur Fjölnismanna skila amk. 1 stigi í hús og vonandi þeim öllum!!
STRÁKAR MÆTUM ALLIR OG GERA ÞETTA ALMENNILEGA EINU SINNI Í SUMAR... EKKI SNÚA BAKI VIÐ YKKAR KLÚBBI ÞEGAR ÁSTANDIÐ ER SVONA!!! HRINGJA Í ALLA!! Fá alla til að mæta... EKKERT BULL!!
»
11.06.2009 14:50:11 / skkari
Sælir bræður
Ég var búinn að skrifa hérna heillangan pistil og svo hrundi tölvan mín og allt draslið dottið út. Þannig ég er brjálaður og nenni ekki að skrifa allt aftur en ætla að púlla feik-hress-gæjann á þetta!!
HEYYYY!!! STRÁKAR HVAÐ ER AÐ FRÉTTA!!
Á laugardaginn ætlum við að vera með þrusustuð á á Gullöldinni frá kl. 11.30 og fram að leik Fjölnis og Fylkis sem hefst kl. 16.00. Við ætlum að byrja að grilla hamborgara ofaní Káramenn kl. 12.00 og eftir það þá ætlum við að sýna myndband sem er verið að setja saman og á eftir að vekja mikla lukku. Ég garentera það. Þegar við höfum lokið við myndbandið þá ætlum við að plata menn eins og Steingó eða Svenna til að grípa í gítarinn og æfa lögin okkar saman.
Eftir þetta húllumhæ þá ætlum við að skella okkur á leikinn og vona það að Fjölnir kræki í eins og þrjústig á móti Árbæjarsmáveldinu Fylki!!
Lengi lifi Fjölnir, húrra, húrra HÚÚÚÚRRRRRAAAA!!!!!
»
01.06.2009 15:42:14 / skkari
Hey drengir það er leikur á eftir... HVAR ERUÐ ÞIÐ???!!!
Ég veit að þessi kemur inn alltof seint en var útá landi og steingleymdi þessu... hvað um það!!
Við mætum trylltir í kvöld... treysti því... öðruvísi stemming í kvöld..´. en samt skemmtileg
Mæting á öldina á eftir... Káramönnum er boðið í Fonzalund fyrir öldina ekki öðrum!
Kv. Fonzinn
(sorry að þetta er ekki lengra að þessu sinni en hef ekki tíma)!!!
»
28.05.2009 10:02:23 / skkari
Já góðan daginn... og góður dagur það er dömur mínar !
Skítt með veðrið... það er FJÖLNISleikur í kvöld og þá getur þetta ekki verið annað en stórglæsilegur dagur!
...Næstir voru það Eyjamenn (næstir voru það Eyjamenn), dónaskapur við ÍBV, hótað var að set'í straff, sektaðir hér, sektaðir þar... Svona samdi skáldið...
Já bræður í kvöld er það lélegasta lið deildarinnar og ég efast ekki um það að það eru flestir ef ekki allir Káramenn sem heimta sigur í kvöld. Það verður spennandi að sjá til strákanna eftir slakt gengi á móti Þrótturum og ég hef fulla trú á að þeir spíti í lófana og sigri leikinn örugglega í kvöld. En ef svo fer ekki þá verður Kári að standa sína plikt og halda áfram að hvetja, þó það blási á móti. Tímabilið GÆTI farið svo að við þurfum að vera þakklátir hverju stigi sem kemur í hús. Við verðum líka að muna, að ef illa gengur hjá liðinu ER ENNÞÁ MEIRI ÞÖRF Á ÞVÍ AÐ VIÐ STÖNDUM ÞÉTT Á BAKVIÐ LIÐIÐ OG GERUM ALLT VITLAUST Á VELLINUM... ÞAÐ ER ÞAÐ SEM GÓÐIR STUÐNINGSMENN GERA!! Þessu gleymdu margir í seinasta leik (undirritaður þar á meðal) en það má ekki koma fyrir aftur!!
Nú vil ég einnig minna á það að þeir sem ætla að kaupa sér bjórkort fyrir leikinn í kvöld VERÐA að leggja 4000 kr. inná reikninginn FYRIR kl. 16.30 í dag og ég mæti svo á barinn og versla fyrir þá sem lögðu inn!
Ég hef ekki tíma til að gera langann pistil um hvernig dagskráin er en hún er classic... Mæting á öldina fyrir leik um 17.00 og fara svo niður á Fjölnisvöll og láta Eyjamenn hafa það óþvegið (og þá meina ég sko óþvegið) og styðja strákana okkar í botn!!
Sjáumst hressir og kátir á eftir bræður!!
Kv. Formaðurinn
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|